Landsbankinn fékk spark í rass hjá Isavía í Leifsstöð og þangað kominn Arion banki í staðinn til að sinna gjaldeyrisþörfum ferðalanga. Nýi bankinn býður nú þá sérþjónustu að panta gjaldeyri fyrirfram á netinu og fá afgreitt fljótt og vel í Leifsstöð. Það er slæmur díll.

Bankastjóri Arionbanka. Hann níddist á neytendum um áraraðir sem forstjóri Valitor og galt fyrir með bankastjórastöðu. Mynd Arionbanki

Veggspjald fyrir framhaldið á Shining? Nei, bara bankastjóri Arionbanka. Hann níddist á neytendum um áraraðir sem forstjóri Valitor og galt fyrir með bankastjórastöðu. Mynd Arionbanki

Aukagjöld hvers kyns eru ær og kýr bankanna og Arion banki þar með talinn. Þar hugmyndin að rífa eins mikinn pening af viðskiptavinum og hægt er og nota til þess fáa starfsmenn eða enga til að spara launakostnað líka. Það stemmir við stjórnunarstíl bankastjórans sem stjórnaði Valitor þegar það fyrirtæki braut samkeppnislög eins og það væri þjóðarsport. Sá gaur hlær ekki aðeins alla leið í bankann heldur í honum líka.

Arion auglýsir nú grimmt vefinn gjaldeyrir.is en þar geta áhugasamir „með einföldum hætti pantað gjaldeyrinn fyrir ferðina þína. Pöntunin bíður þín svo í útibúi Arion banka í brottfararsalnum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þar sem sérstakur þjónustufulltrúi annast afgreiðslu gjaldeyrisins svo allt gangi eins hratt og kostur er.“

Svo margt athugavert þegar íslenskur banki auglýsir eitthvað nýtt, spennandi, auðvelt og fljótlegt? Fyrir utan að líkurnar á að „sérstakur þjónustufulltrúi“ sinni þínum gjaldeyrismálum eru minni en engar. Það er bara einhver af þeim þjónustufulltrúum sem starfa í Leifsstöð. En „sérstakur“ hljómar vel í auglýsingum.

Í ljós kemur samkvæmt úttekt Fararheill að hér er flagð undir fögru að hætti bankastjórans. Flagð sem felst í sérstakri 580 króna „þóknun“ fyrir pöntunina á gjaldeyrinum.

Hmm. Það hljómar ekki svo slæmt kannski? Tæpar sex hundruð kúlur fyrir að hafa gjaldeyrinn kláran vandræðalaust í brottfararsalnum. Við erum öll sek um að hafa gert eitthvað verra en það.

En það sem bankinn lætur alfarið hjá líða að benda á er sú gamalkunna staðreynd að það er miklu hærri álagning á gjaldeyri í Leifsstöð en í næsta útibúi bankans. Er þó þegar töluverð álagning fyrir á gjaldeyri hvers kyns hjá bönkunum almennt. Sú álagning leggst ofan á sex hundruð krónurnar fyrir þjónustuna.

Hvað skyldi sú álagning vera há? Tvær krónur og sautján aurar er munurinn á einum bandarískum dollar þegar þetta er skrifað.

Það er ekki neitt hugsar þú kannski. Gefum okkur að þú ætlir að fata upp mannskapinn í ferðinni og viljir skipta hámarkinu 350 þúsund krónum í gjaldeyri. Ef þú gerir það í næsta útibúi Arionbanka þá færðu 2.785 dollara í vasann. Ef þú gerir það gegnum gjaldeyrir.is endar þú með 2.737 dollara í sama vasa mínus sex hundruð króna þóknunina fyrir sérþjónustu sérlega þjónustufulltrúans.

Með því að nýta þér þessa nýju „spennandi“ þjónustu Arionbanka í stað þess að skipta bara í næsta útibúi ertu búin/n að tapa rétt tæpum SJÖ ÞÚSUND KRÓNUM!!! 

Það er dálítill peningur fyrir okkur mörg ekki satt 🙂