Svo þig hefur lengi dreymt um góðan túr um hið fagra land Víetnam án þess að kosta of miklu til. Tækifærið gæti verið komið.

Þetta lítur ekki illa út. Borgin Danang var sprengd í tætlur í Víetnamstríðinu en hér rísa menn úr öskunni aftur eins og ekkert sé :)

Þetta lítur ekki illa út. Borgin Danang var sprengd í tætlur í Víetnamstríðinu en hér rísa menn úr öskunni aftur eins og ekkert sé 🙂

Það þarf pínulítið sérstakt fólk til að kjósa hið fjarlæga Víetnam framyfir skottúr yfir til Kanarí þar sem sólin gerir alla sæta og fallega á vikutíma og bjórinn kostar evru.

Nema kannski ef túrinn til Víetnam, þar sem sólin brennir fólk líka og bjórinn sömuleiðis á innan við evru, kostar svipað og góður túr til Kanaríeyjanna.

Það er næstum raunin nú gegnum norsku útgáfu ferðamiðilsins Travelbird. Þar fæst nú, með haustinu og fram á vetur, sextán nátta ferð um Víetnam með flugi til og frá Osló alla leið niður í 185 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman. Þar sem við komumst næsta auðveldlega til Oslóar fyrir lítið með góðum fyrirvara má skjóta á að ferðin atarna geti orðið okkar fyrir rétt rúmar 200 þúsund krónur á mann.

Það er verð sem ætti að vera flestum að skapi og líklega ekki svo langt frá verði á sextán daga túr til Kanarí ef fólk sættir sig ekki við einhver skítahótel. Og þú hefur ekki einu sinni heyrt hvað er í boði í pakka Travelbird. Það getur þú kynnt þér hér ef þú kannt norsku eða norðurlandamál en við erum að tala um fullorðins ferð í alla staði. Ágæt hótel alla ferðina, aðgangur að ýmsum söfnum, sigling um hið ævintýralega Halong flóa og tækifæri til að skoða æðislegar borgir á borð við Ho Chi Minh, Hanoi, Lao Cai og Hoi An svo fátt sé nefnt.

Gleymdum við nokkuð að benda á að um haust- og vetrarferðir er að ræða sem þýðir auðvitað að þú biður líka að heilsa ísköldum norðangarra svona rétt á meðan þú prófar heimabruggið í Ho Chi Minh 🙂