Sé mið tekið af því að umtalsverðar tafir verða á hartnær 30 prósent allra flugferða Wow Air mætti gera ráð fyrir að farþegar sem ekki kjósa að eyða takmörkuðum tíma sínum í þreyttum flugstöðvum gætu átt þess kost að innrita sig síðar í þeim tilvikum sem flug Wow Air tefst fram úr hófi. Ekki aldeilis.

Seinkun á flugi Wow Air þýðir ekki að þú getir seinkað innritun sem því nemur. Mynd Heads Up Aviation
Breyttir tímar hjá Wow Air. Flugfélagið þreyttist ekki á að auglýsa sig mest og best og stundvísast hér fyrir tveimur til þremur árum hefur gert heldur lítið af því að undanförnu. Ástæðan sennilega sú að velflest önnur flugfélög eru nú stundvísari. Það er sem við vöruðum við á sínum tíma að fara varlega að blása sig út. Stóru orðin koma nefninlega stundum í bakið á fyrirtækjum og fólki.
Einhver hefði haldið að í þau skipti sem verulegar tafir eru á flugi Wow Air að þeir sem heima bíða flugs gætu kannski nýtt sér töfina öðruvísi en með hangsi á þreyttum flugvöllum. Eðlilegt að hugsa sem svo að fyrst vélin er tveimur tímum of sein er ráð að hinkra með ferð á flugvöllinn strax.
En samkvæmt svari Wow Air við slíkri fyrirspurn á fésbókinni er ekkert gefið að tafir þýði að innritun í flug sé opið lengur. Þvert á móti gæti innritunargengið pakkað saman og húrrað sér út í smók og þú komið að lokuðum dyrum þó enn séu ár og aldir áður en vélin lendir.
Þetta er mjög á skjön við óskrifaðar reglur hjá velflestum öðrum flugfélögum. Þar skiptir viðskiptavinurinn máli og hans velferð og þar sem fáum þykir það hápunktur lífsins að bíða eftir flugi klukkustundum saman í fokdýrum flugstöðvum er eðlilegt að ef flugi seinkar fram úr hófi að lengur sé opið í innritun í viðkomandi flug.
En ekki endilega hjá Wow Air og þar sem svarið er að „það sé ekki alltaf hægt“ liggur í hlutarins eðli að þú verður alltaf að vera mætt/-ur á völlinn á uppgefnum tíma jafnvel þó rellan sé enn að gera klárt fyrir flugtak í öðru landi.
Góð þjónusta. Ekki!







