Paradísareyjan Máritíus í Indlandshafi er einkum þekkt fyrir þrennt: kostulegar strendurnar, himinblá sjávarlón og einhver litríkustu og heillegustu kóralrif í heiminum. En ekki lengur.

Paradís sannarlega en varla næstu árin.
Hér til hliðar gefur að líta hefðbundna strönd þessarar einstöku eyju undir venjulegum kringumstæðum. Eyjan, langt undan austurströnd Afríku, státar af einhverjum hreinasta sjó sem finnst og ekki þarf að fara neinum orðum um súpergott veðurfarið. Það er enda svo að eyjan trekkir gjarnan þá sem eiga seðlabúnt undir kodda og vilja eitthvað yndislegra en Benídorm.
Alas, ljóst er orðið að Máritíus trekkir ekkert næstu misserin og jafnvel árin. Olíuslys rétt undan strönd landsins hefur nú þakið stóran hluta strandlengjunnar með þúsund tonnum af biksvartri olíu og talið er að tvö þúsund tonn af olíu séu enn eftir í olíuskipinu sem situr fast á kóralrifi. Hætta talin á að skipið brotni í tvennt næstu sólarhringa.
Eðli máls samkvæmt hafa fátæk yfirvöld á eynni lítið sem engin efni á né ráð til að takast á við slíkt og sterkar líkur á að hreinsunarstarf muni taka mánuði hið minnsta með tilheyrandi hörmungum fyrir dýralíf og ferðaþjónustu.







