Hmmm! Vissulega er Tæland stórt og fjölmennt ríki en þrátt fyrir að ungfrú Kóróna hafi leikið það landið grátt síðustu mánuði er tælenskur gjaldmiðillinn að sökkva íslensku krónunni. Það er fátt súperódýrt lengur í þessu landinu.

Tælenska bahtið. Sá gjaldmiðill er að standast raunir töluvert betur en aumingjans krónan okkar.
Einhver gæti dregið þær ályktanir að Tælendingar séu með Nóa-Síríus böggum Hildar nú þegar Covid-19 herjar þar grimmilega eins og annars staðar. Það eru jú fjölmenn mótmæli á götum Bangkok hvern dag og samkvæmt þarlendum fregnum hefur fjöldi heimilislausra aldrei verið meiri. Og þetta er land hvers efnahagur reiðir sig meira á ferðafólk en Ísland.
Engu að síður hefur gjaldmiðill landsins, baht, staðist raunirnar mun betur en íslenska druslan sem við köllum krónu. Í byrjun árs fékk Íslendingur rúmlega 2500 baht fyrir 10000 kallinn en sjö mánuðum síðar er sami tíu þúsund kall aðeins að negla 2200 tælensk baht. Það er niðurgangur upp á 14% eða svo á aðeins örfáum mánuðum.
Það undarlega við þá stöðu mála sú að Tæland reiðir sig miklu meira á ferðafólk en Íslendingar. Þegar ein mesta krísa sem sögur fara af gengur yfir og erlent ferðafólk jafn sjaldgæft og geirfuglar og mammútar er eðlilegt að draga þá ályktun að tælensk baht missi móðinn eins og íslenska krónan.
En ekki svo. Það er nú 14 prósent dýrara að dvelja og njóta í Tælandi ef þú átt íslenskar krónur til að eyða. Og það stökk er nægilega mikið til að breyta góðum og ódýrum áfangastað í góðan og ekki svo ódýran áfangastað. Eða hvar finnurðu Íslending sem segir að 800-900 krónur fyrir skitinn bjór á bar sé gjafverð?
Með öðrum orðum: fokk íslenska krónan.







