Tíðindi

Einkadans í Vegas dregur dilk á eftir sér

  01/05/2011nóvember 24th, 2014No Comments

Yfirleitt er það svo að það sem gerist í Vegas verður eftir í Vegas. Þetta vita allflestir þeir sem þangað sækja og stunda þá mögulega misréttlætanlega iðju hvort sem það er gagnvart maka sínum eða yfirvöldum.

En nú hefur sá fáheyrði atburðir átt sér stað að ferðamaður hefur lagt fram kæru á hendur einkadansara og krefst milljóna króna skaðabóta.

Auðvitað gæti ekkert þessu líkt gerst annars staðar en í mekka sódómu í Las Vegas í Bandaríkjunum. Vill ferðamaðurinn meina að stúlka sú sem hann réði til að dansa einkadans og strippa fyrir sig á hóteli í Vegas fyrir skemmstu hafi ekki staðið við samning þann sem þau gerðu. Hún hafi staldrað skemur við en talað var um og valdið vonbrigðum á alla kanta.

Hringdi maðurinn á lögreglu vegna málsins sem hótaði handtöku en maðurinn lét sér ekki segjast og hefur lagt fram formlega kæru og krefst 200 milljóna króna bóta auk endurgreiðslu vegna einkadansins.