Úttekt hótelbókunarfyrirtækisins HRS leiðir í ljós að verð á hótelum fer mjög hækkandi í velflestum stærri borgum heims. Gerði fyrirtækið samanburð á verðum í 40 borgum heimsins og hefur verið hækkað á þessu ári í öllum nema sjö þeirra.
Mest hækkun mældist í Mumbai á Indlandi þar sem hótelverð að meðaltali hækkuðu um 35 prósent.
Töluvert dýrara er líka að gista í Sidney í Ástralíu því meðalhækkun þar á árinu nemur 27 prósentum. Þá hafa hótel í New York hækkað um 15 prósent og 13 prósent í London.
Ítrekar ritstjórn Fararheill fyrir ferðalöngum að gefa sér góðan tíma til að bera saman hótel þegar ferðast er á eigin spýtum. Bæði bera saman verð á milli hótelbókunarvéla en ekki síður skoða heimasíður hótelanna sjálfra.
Þetta er tímafrekt en sparnaður af slíku getur verið umtalsverður þegar upp er staðið.






