Hvort sem það er til marks um loftslagsbreytingar eða ekki er það staðreynd að fyrstu tvö tilfellin af landlægri beinbrunasótt, dengue fever, fundust haustið 2012 í Nice í Frakklandi.

Fólk hefur veikst af beinbrunasótt í Nice í Frakklandi en sú skæða sótt smitast með moskítóflugum. Mynd Rodrigo_Soldon

Fólk hefur veikst af beinbrunasótt í Nice í Frakklandi en sú skæða sótt smitast með moskítóflugum. Mynd Rodrigo_Soldon

Sjúkdómur þessi, sem engin lækning er til fyrir, hefur lengi valdið vandræðum í Mið- og Suður Ameríku, Afríku, nokkrum Miðausturlöndum, Asíu, Ástralíu og á ýmsum Kyrrahafseyjum.

Sjúkdómurinn berst með moskítóflugum og lýsir hann sér í miklum höfuð-, bein- og liðverkjum auk útbrota að nokkrum dögum liðnum.

Getur þó á stundum sjúkdómurinn lýst sér í vægum hita en í verstu tilfellunum getur beinbrunasótt dregið fólk til dauða. Þá er einnig um að ræða mikinn hita og blæðingar í slímhúð og húð fylgja í kjölfarið. Án meðhöndlunar getur slíkt dregið einstakling til dauða á tveimur vikum.

Leiki minnsti vafi á slíku hvort sem er erlendis eða eftir að hingað heim er komið skal tafarlaust leita læknis. Betra að vera viss en dauður.

Tekið skal fram að þeir einstaklingar sem sýktust í Frakklandi náðu sér að fullu og hafa frönsk yfirvöld gert ýmsar ráðstafanir til að sporna við sjúkdómnum síðan þá.