Tíðindi

Eðaltilboð hjá Heimsferðum

  18/08/2012febrúar 4th, 2014No Comments

Hjá ferðaskrifstofunni Heimsferðir eru nú í boði sérdeilis fínn díll á flugi til þriggja áfangastaða nú í haust og frameftir vetri. Flug til Billund, Kaupmannahafnar og Oslóar kostar aðeins 9.900 krónur með sköttum og gjöldum.

Ekki er hægt að kvarta yfir þessu verði á flugi en algengt verð fyrir slíkt flug er frá 16 til 40 þúsund krónur hjá öðrum aðilum. Er þá frátalið tilboð Wow Air til Kaupmannahafnar næsta mánuðinn sem fæst á sama verði.

Þá er og hægt að taka sér tíma til umhugsunar sé þess þörf. Osló er í boði á þessu fargjaldi til mars á næsta ári samkvæmt bókunarvél Heimsferða. Billund hins vegar er einungis í boði fram í september og Kaupmannahöfn fram í október.

Út með þig! Þú átt það bara víst skilið.

Heimasíða Heimsferða hér.