Ár og dagar eru síðan bækurnar og kvikmyndirnar um Júragarðinn þar sem risaeðlur fortíðarinnar völsuðu um í sérstökum skemmtigarði vöktu heimsathygli. Óvíst er hversu mikið taka skal það alvarlega en ástralskur milljarðamæringur reynir nú að setja slíkan skemmtigarð á laggirnar.
Svo er fullyrt í dagblaðinu Sunshine Coast News og svo alvarlega tekur auðjöfurinn Clive Palmer verkefnið að hann hefur ráðið vísindamennina sem klónuðu kindina Dolly á sínum tíma til að blása lífi í löngu útdauðar risaeðlur. Raunveruleikinn er þannig farinn að nálgast sýn rithöfundarins Michael Crichton sem bækurnar skrifaði.
Hvort T-Rex og aðrar risaeðlur verða þannig í framtíðinni raunverulega til sýnis skal ósagt látið en Palmer þessi virðist hafa óeðlilegan áhuga á fortíðinni. Hann er einnig að láta smíða nákvæma eftirlíkingu af Titanic í fullri stærð sem einnig á að verða að skemmtigarði þegar smíðinni lýkur.
Það er því kannski óhætt að setja Ástralíu á ferðalistann eftir tíu til fimmtán ár eða svo.







