Lengi vel var lággjaldaflugfélagið Ryanair langstærsta slíka flugfélag heims og flutti mun fleiri farþega en easyJet sem næst hefur komið um árabil. En nú er ævintýrið úti. easyJet vex tvöfalt hraðar en írska flugfélagið.
Sem kunnugt er hefst flug easyJet til Íslands með vorinu og verður flogið út árið milli Luton og Keflavíkur. Sala ferða er sögð framar vonum án þess þó að vikulegum ferðum sé fjölgað. En það er víðar sem easyJet er að gera gott strandhögg. Sífellt fleiri Frakkar og Ítalir kjósa easyJet og þar eru stærstu markaðir félagsins fyrir utan Bretland sjálft.
Oft er sagt að neytendur kjósi með fótununum. Það hefur aldrei verið reyndin hér á Íslandi enda neytendavitund langt undir meðallagi en annars staðar í Evrópu er hún sterk og engin önnur orsök getur verið fyrir fallandi gengi Ryanair en sífelldar árásir forstjóra Ryanair á viðskiptavini sína.
Ekki aðeins hefur hann opinberlega gefið ítrekað skít í athugasemdir farþega sinna heldur og reynir sífellt að finna leiðir til að plokka meiri pening af fólki. Það er Ryanair sem komið hefur fram með hugmyndir á borð við að greiða aðgangseyri að klósettum um borð í þotum svo dæmi sé tekið.
Það hlaut að kom að því að almenningur fengi nóg jafnvel þó fargjöld Ryanair séu nú sem fyrr mjög samkeppnishæf við alla samkeppnisaðila. Stundum er bara lágt verð ekki þess virði.
easyJet er að hefja flug frá nýjum stað í Bretlandi í apríl. Þá hefjast ferðir frá flugvellinum í Southend. Sá flugvöllur er í raun nær London sjálfri en Stansted flugvöllur.






