Lesandi einn vakti athygli okkar á ótrúlegum verðmun á fargjöldum lettneska flugfélagsins Primera Air. Flugfélagið býður nú þrjá mismunandi verðflokka en þeir sem greiða mest virðast fá undarlega lítið fyrir sinn snúð.

Dýrkeypt máltíðin á leiðinni til Alicante með Primera Air.
Gott dæmi um þetta má sjá á skjáskotinu hér til hliðar. Þar gefur að líta kostnað við flug aðra leiðina með Primera Air til Alicante í september næstkomandi. Þetta er tiltölulega stuttur túr og þörf fólks fyrir aðhlynningu á leiðinni takmörkuð.
En langi þig í eina heita kvöldmáltíð meðan á fluginu stendur þá er það að kosta þig heilar 15 þúsund krónur. Sem væri í lagi ef um fjórréttað væri að ræða og matreitt af stjörnukokki en svo er ekki. Þetta er bara upphitaður flugvélamatur eins og hann gerist ódýrastur og líklega útbúinn í mötuneyti í Lettlandi.
Í allri sanngirni þá fylgir annað og meira í kaupunum á dýrasta fargjaldinu. Nafnabreyting er frí, breyting á dagsetningum leyfileg án gjalds og fargjaldið er endurgreitt að fullu sé þess óskað fyrir tiltekinn tíma.
En hver er raunþörf almenns sólþyrsts farþega á nafnabreytingu, breytingu brottfarardags eða möguleikans að fá allt endurgreitt á leið til Alicante? Það eru jú fáir á leið þangað í bissness og flest erum við fær um að skrifa nafnið okkar á réttan hátt á bókunarsíðu. Sé einhver í vafa um hvernig það er gert er líklega óhætt að bóka heimsókn til læknis áður en bókað er til Alicante.
Endurgreiðsla gæti víst komið einhverjum til góða í neyð en þá ber á það að líta að allra lægsta fargjaldið í boði án farangurs kostar rúmar sextán þúsund krónur og því hægt að sjoppa nýjan miða á gróflega sama verði og það kostar að fá súperpakkann hjá Primera ef endurgreiðsla kemur ekki til greina.
Svo má ekki gleyma því, að þrátt fyrir yfirlýsingar um annað, þá er evrópskum flugfélögum SKYLT að endurgreiða farþega fargjald að fullu með peningum ef för hefur tafist meira en fimm stundir. Evrópureglur toppa alltaf einhverjar innherjareglur flugfélaganna en oft þarf að sækja það með hörðu.
Aðalatriðið er þó eftir. Sú staðreynd að Primera Air, sem ekki er þekkt fyrir góða þjónustu almennt, heimtar tæplega 40 þúsund krónur fyrir flug aðra leið til Alicante á Spáni. Það þýðir 80 þúsund krónur fram og aftur. Það er okur burtséð frá öllu öðru.







