Það eru til verri staðir á jarðkringlunni en Karíbahafið í nóvember, desember og janúar. Yfirleitt kostar það okkur hönd og fót plús aleiguna á bankabókinni. En ekki alltaf 🙂

Er þetta meira spennandi en vetur á klakanum í nóvember?

Lággjaldaflugfélag Air France, Level, er þessi dægrin að skjóta út sérdeilis fínum pökkum frá París til tveggja áfangastaða í karabíska. Eða hvernig hljómar túr fram og aftur með stoppi í París fyrir 60 til 70 þúsund kallinn?

Fyrir þann pening er hægt að eyða tíma undir sólinni á Martinique eða sólinni á Guadeloupe á næstu vikum og mánuðum niður í 38 þúsund kall frá París. Bætum við það 30 kalli til Parísar og heim og við njótum lífs á sendnum ströndum Karíbahafs fyrir 70 til 80 þúsund kall á kjaft.

Ekki viss hvar Martinique eða Guadaloupe er að finna? Hér er kort:

Jamms. Þetta eru alvöru eyjur á alvöru stað. Flugtími til og frá litlar sextán klukkustundir frá París. Og þess vegna er 70-80 þúsund kall súpergóður brandari fyrir túr í sól og sælu í karabíska.