Fjórtán þúsund kvartanir í Bretlandi 2018 samkvæmt neytendavefnum Which! og vel yfir 50 þúsund kvartanir á vef Airbnb í Bandaríkjunum á sama ári. Stundum standast hlutirnir ekki skoðun en þá þarf að fara að öllu með gát.

Airbnb kemur sér sífellt meira upp á móti borgaryfirvöldum í evrópskum borgum. Það mun hafa afleiðingar.

Það eru skítaplebbar sem leigja út íbúðir á Airbnb alveg eins og þjónusta á tilteknum hótelum og gististöðum er fyrir neðan hellur BM Vallá. En hvað skal gera ef þú lendir á íbúð þar sem er kúkur í lauginni?

Alltaf gott að ganga að engu vísu hvað sem tautar og raular. Eða hversu oft höfum við látið blekkjast af flottum auglýsingum aðeins til að komast að því seinna meir að umrædd vara er lélegri en fótanuddtæki frá Clairol?

Þó lítið fari fyrir þá er Airbnb ekki heilagur staður frekar en Vatíkanið. Ýmislegt vafasamt fólk sem gerir út íbúðir þar á bæ eins og annars staðar og lofa ýmsu sem ekki stenst þegar á Stykkishólm er komið.

En ólíkt mörgum hótelum eða gististöðum sem verða lögum samkvæmt að endurgreiða þér kostnað ef eitthvað alvarlegt bjátar á þá er málinu aðeins öðruvísi farið hjá Airbnb.

Segjum sem svo að þú leigir íbúð gegnum Airbnb. Fjölskyldan mætir á staðinn og skömmu síðar kemur í ljós að það eru blóðslettur á rúmfötunum og svo mörg hár í sturtubotninum að höfundar söngleiksins Hársins hóta lögsókn.

Eðli máls samkvæmt hefur enginn áhuga að dvelja í slíku rými og allir út með det samme. En hér liggur hundur grafinn. Það mætti nefninlega halda að ef íbúð eða gististaður stenst ekki loforð á Airbnb mætti fólk bara drífa sig annað og svo heimta endurgreiðslu frá hinu bandaríska fyrirtæki.

En neibbs. Ekki svo hratt.

Samkvæmt smáa letrinu í skilmálum Airbnb þurfa þeir sem eru ósáttir við leiguíbúð einhverra hluta vegna fyrst að senda þjónustuveri fyrirtækisins skeyti þess efnis. Viðkomandi þurfa einnig að bíða þess að fyrirtækið svari fyrirspurninni og ennfremur að bíða þess að eigandi eða umráðamaður mæti á staðinn til að meta kvörtunina. Það ferli getur vel tekið tvo til þrjá sólarhringa.

Ef þið eruð eins og við hér á ritstjórn Fararheill þá er málið að bóka aðra gistingu prontó ef leiguíbúð reynist verulega mikið ógeðslegri en ráð var fyrir gert. En ef þú gerir slíkt án þess að eigandi fái tækifæri til að rétta sinn hlut þá færðu aldrei nokkurn tímann endurgreitt og þaðan af síður nokkrar bætur.

Skilmálar Airbnb kveða á um að ef tilefni er til kvartana skal umsvifalaust hafa samband bæði við Airbnb og eigandann og eigandinn hefur einn til tvo sólarhringa til að lagfæra það sem aflaga hefur farið.

Ef þú eða þið flytjið burt áður en eigandi getur mætt á staðinn og fengið ráðrúm til að bæta það sem miður er, þá mun Airbnb hvorki endurgreiða eina krónu né heldur greiða bætur.

Með öðrum orðum; þú þarft að halda kyrru fyrir og bíða leigusala ef þú ætlar að eiga minnstu möguleika á að fá endurgreiðslu og eða bætur hjá Airbnb.