Hmmm. Lífeyrissjóðsfyrirtækið Icelandair, sem eyðir rúmum tvö hundruð milljónum árlega í auglýsingar, hættir samstarfi við sitt auglýsingafyrirtæki til 30 ára og flytur sig yfir til auglýsingastofunnar Hvíta húsið. Helber tilviljun að glænýr markaðsstjóri Icelandair var lengi framkvæmdastjóri þeirrar auglýsingastofu.

Forstjóri Icelandair gæti vel leikið aðalhlutverkið í American Psycho. Mynd Icelandair

Þarf svo sem ekki að hafa klárað stærðfræði 101 til að leggja saman tvo og tvo í þessu tilfelli. Fimm mínútum eftir að Icelandair ræður framkvæmdastjóra Hvíta hússins sem nýjan markaðsstjóra fær Hvíta húsið 200 milljóna króna auglýsingapakka sísona að gjöf. Og nýi markaðsstjórinn á enn stóran hlut í auglýsingastofunni.

Allt eðlilegt við þetta (ekki.)

Enn ein ástæðan fyrir að sleppa viðskiptum við þetta batterí. Nema auðvitað þú elskir spillingu og viðbjóð.