Hmmm. Einhver gæti haldið að með þúsund topp lögfræðinga og fimm þúsund topp markaðsfræðinga þá gæti flugvélaframleiðandinn Boeing gert eitthvað rétt. En svo er ekki.

Fara Boeing Max vélar Icelandair nokkurn tímann aftur í loftið? Á því leikur vafi. Mynd Icelandair
Yfirmenn Boeing eru sagðir súrir og sárir með að flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum vilja ekki lengur leggjast á bakið og breiða út lappir þegar kemur að því að gefa Max-8 vélum Boeing flugheimild á ný.
Athyglisverð grein á fréttavef Wall Street Journal þennan daginn. Greinin sú reyndar bak greiðslugátt svo punga þarf út fyrir lestur en við punguðum út og getum gefið ykkur kjarnann án þess að þú þurfir að borga.
Greinin snýst um að forráðamenn Boeing eru fúlir út í eftirlitsmenn Flugmálastofnunar Bandaríkjanna fyrir að fara að öllu með gát áður en meingallaðar Max-8 vélar framleiðandans fara aftur í loftið með farþega. Ekki bara eru stjórnendurnir súrir út í bandarísk yfirvöld heldur og flugyfirvöld í Brasilíu, Evrópu og víðar en ýmsar þjóðir heimta nú ítarlegar tæknilegar úttektir á Max-8 rellunum og skýr svör með.
Þau svör fást illa eða alls ekki frá Boeing ef marka má grein WSJ og það þrátt fyrir að flugvélaframleiðandinn sé að blæða meiri peningum en nokkru sinni og hundruðir Max-8 véla sitji nú og safni ryki á hinum og þessum stöðunum.
Þjóðráð einmitt eftir að rúmlega fimm hundruð einstaklingar dóu drottni sínum í Max-8 vélum og afsökunarbeiðnir hægri vinstri, að gera flugeftirlitsmönnum erfitt fyrir að fá svör.
Eitthvað segir okkur að Max-8 vélar Boeing muni aldrei fljúga á ný og jafnvel þó það gerist er enginn vitiborin manneskja að setjast um borð nema flugið sé frítt.







