Skip to main content

Eitthvað kampavín hlýtur að flæða um skrifstofur flugleitarvefsins Dohop í Nóatúni þessa stundina en í nótt var vefurinn valinn sá besti í hópi flugleitarvéla á hinni virtu World Travel Awards.

Besta flugleitarvél ársins 2014 er Dohop. Fantagóður árangur vægast sagt

Besta flugleitarvél ársins 2014 er Dohop. Fantagóður árangur vægast sagt

Þetta er magnaður árangur hjá litlu fyrirtæki á Íslandi en keppinautarnir voru ekkert í lakari kantinum en tilnefndir voru vefir á borð við Skyscanner, Hipmunk, Kayak og Momondo.

Þetta mun auka hróður íslenska fyrirtækisins til mikilla muna á erlendri grundu enda sýnt sig að verðlaun þessi hafa töluverð áhrif

Hamingjuóskir frá Fararheill.