Eins og lesendur okkar vita þá leggjum við okkar lóð á vogarskálar til að aðstoða og hjálpa fólki sem kýs að ferðast á eigin forsendum en treystir sér kannski ekki hundrað prósent til að finna flug og ferðir á lægsta verði og besta tíma. Þennan daginn spöruðum við tveimur pörum rúmlega 550 þúsund krónur.

Kafaldsbylur og snjóalög heima á Íslandi meðan stærsta vandamálið á Kúbu eru svitastrokur úr hita. Mynd Doug Wheeler

Kafaldsbylur og snjóalög heima á Íslandi meðan stærsta vandamálið á Kúbu eru svitastrokur vegna hitans. Mynd Doug Wheeler

Hjónapörin komu að máli við okkur um miðjan ágúst og vildu njóta lífsins yfir jól- og áramótin á Kúbu og skipta ferðinni niður í nokkra daga á Varadero, tvo til þrjá daga í Havana en jafnframt eiga viku aukalega til að þvælast frjáls um en eiga þó alltaf gistingu að kvöldi.

Svo við gerum langa sögu stutta þá fundum við strax lægstu fargjöld til Kúbu frá Toronto í Kanada þangað sem Icelandair flýgur beint héðan og ítrekuðum þörf á því að bóka bæði flug strax í ágúst. Það gerðum við vegna þess að almennt er fólk enn í sumarskapinu í þeim mánuði og afar fáir farnir að skipuleggja sérstök jólafrí á þeim tíma.

Skemmst er frá að segja að körlunum leist ekki vel á að bóka með svo löngum fyrirvara. Bæði gætu aðstæður breyst á fjórum mánuðum en þeir vissu líka að endrum og sinnum á haustin detta í hús safarík tilboð til Kúbu. Sem er rétt en slíkar ferðir eru niðursoðnar og nánast engar gefa tækifæri til að þvælast mikið um eyjuna.

Úr varð eftir nokkurra daga eldhúsumræður að bóka flugferðirnar strax þá í ágúst og fékkst flug héðan til Toronto kringum 84 þúsund á mann fram og aftur og frá Toronto til Kúbu fyrir 72 þúsund á mann fram og aftur. Samtals kostnaður á öll fjögur 624 þúsund krónur.

Við höfum fylgst grannt með verðþróun á þessari flugleið síðan og raunin sú að strax aðra vikuna í september hækkaði lægsta fargjald frá Toronto til Kúbu um fjórtán þúsund krónur í 86 þúsund. Fjórum vikum síðar um miðjan október var lægsta fargjald komið í 91 þúsund krónur og svo nánast í einu vetfangi rauk lægsta fargjaldið upp í 126 þúsund krónur þann 6. nóvember. Það fargjald fékkst um vikutíma eða svo áður en meðalfargjaldið rauk upp í 200 þúsund krónur.

Pörin fóru af landi brott í gær og brottfarardaginn kostaði fargjaldið frá Toronto til Kúbu og til baka að lágmarki 207 þúsund krónur á mann. Yfir sama tímabil hækkaði lægsta fargjald Icelandair auðvitað líka. Úr 84 þúsund á mann í tæplega 120 þúsund á mann þegar þetta er skrifað. Að frátöldum hækkunum á hótelgistingu og ferðum innanlands á Kúbu.

Það er mörg hundruð þúsund króna sparnaður og sýnir glögglega að það margborgar sig að skipuleggja og bóka flug og ferðir með eins miklum fyrirvara og annars er hægt.