Þó hitastig á klakanum hafi verið bærilegt miðað við árstíma að undanförnu breytir það ekki því að enn er kaldur vetur og fólk margt orðið grátt og gruggugt langt fyrir aldur fram og langeygt eftir sól og lit á kroppinn.

Ein af betri bæjum Costa del Sol nú á feitlögnu tilboði frá Bretlandi. Mynd Miguel Angel Lopez

Einn af betri bæjum Costa del Sol nú á feitlögnu tilboði frá Bretlandi. Mynd Miguel Angel Lopez

Þá teljum við óhætt að mæla með sérdeilis góðu sólartilboði bresku ferðaskrifstofunnar Hays Travel sem býður á nokkrum dagsetningum um miðjan næsta mánuð þriggja nátta ferðir til Costa del Sol á Spáni frá Gatwick eða Stansted með máltíðir innifaldar á góðu hóteli fyrir aðeins 26 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman.

Fimmtíu þúsund rúmar fyrir skyndisælu á einni af fallegri ströndum Costa del Sol um miðjan mars er svo gott sem brandari og það jafnvel þó eftir eigi að greiða fyrir flug til London og heim aftur.

Nánar um málið hér en hafa skal í huga að það verður að panta þessa ferð símleiðis.