Fyrir þau okkar sem kjósa allra helst að skipuleggja okkar eigin ferðir og ekki takmarka okkur við það litla úrval sem í boði er hérlendis er oft eina leiðin að koma sér og sínum yfir til London og fljúga þaðan um heim allan. Færri kannski vita að einn fjandi góður kostur er Billund í Danmörku.

Tveir flugvellir í Billund. Hinn raunverulegi og nákvæm eftirmynd hans í Lególandi. Mynd loosrboy

Tveir flugvellir í Billund. Hinn raunverulegi og nákvæm eftirmynd hans í Lególandi. Mynd loosrboy

Það getur verið basl og vesen að millilenda í London og jafnvel skipta um flugvöll til að komast á leiðarenda. Það er dýrt og tímafrekt að fara milli gerist þess þörf og margir vellir leiðinlegri en andskotinn ef bíða þarf lengi eftir tengiflugi áfram.

Hvað ritstjórn Fararheill varðar erum við ansi hrifin af Billund í Danmörku. Ekki bænum per se heldur þeim möguleikum sem í boði eru þaðan. Þangað fljúga nefninlega bæði Icelandair og Primera Air frá Íslandi og frá Billund eru allnokkur stór lággjaldaflugfélög með ágæt tilboð mjög reglulega. Ryanair, easyJet, Wizz Air og Norwegian svo einhver séu nefnd af þeim ódýrari.

Þaðan er því komist með góðum fyrirvara á staði sem ekki eru í boði héðan beint. Staði á borð við Feneyjar, Flórens, Róm, Mílanó, Faró, Malaga og Lissabon en ekki síður kannski staði sem eru fokdýrir beint frá Íslandi eins og Barcelóna eða Alicante.

Fyrir utan að lendi fólk í lengri bið er aðeins fimm mínútna leigari út í Lególand sem er töluvert skemmtilegri staður til að eyða tímanum en grasbletturinn við Stansted eða í umferðarteppu við Gatwick.

Þess vegna sakar ekki að hafa Billund bak við eyra.