Nýjar auglýsingar Wow Air eru áberandi á fésbókinni og víðar þennan daginn. Þar stærir flugfélagið sig af því að vera að bjóða tónlistarmanninum Justin Timberlake til landsins og lofar stuði og stemmingu í Kópavogi í sumar.

Væri ekki nær að lækka flugfargjöldin eða hækka laun starfsfólks en að eyða í ótengt rugl?

Væri ekki nær að lækka flugfargjöldin eða hækka laun starfsfólks en að eyða í ótengt rugl?

Nú vitum við ekki nákvæmlega hvað felst í yfirlýsingunni „að Timberlake komi til landsins í boði Wow.“ Strákurinn á alveg sína eigin einkaþotu og samkvæmt google er líka til sérstök vél sem flytur allt draslið hans milli tónleikastaða. Varla er því verið að fljúga með hann eða dótið hans. Líklega er Wow að leggja í púkk ásamt Senu til að greiða fyrir herlegheitin. Ótrúlegt er annað en þar sé um milljónir að ræða.

Sem vekur upp spurningar um hvers vegna Mogensen og kompaní notar ekki slíkar upphæðir til að hækka laun starfsfólksins sem hefur staðið sig frábærlega eða beinlínis til að lækka flugfargjöld?

Það er engan veginn hluti af kjarnastarfsemi flugfélags sem titlar sig lággjaldaflugfélag að henda milljónum króna í erlendan vellauðugan tónlistarmann?