Ef þú hefur áhuga að deila nótt á sama hóteli og stórstjarnan Mariah Carey er kjörið að bregða sér á hótelbókunarvef okkar hér að neðan og negla málið.

Mariah Carey borgar 1,6 milljón króna fyrir nótt hér. Lesendur Fararheill sleppa með 52 þúsund kallinn 🙂
Smartland Moggans greinir frá því að söngkonan fræga ætli í frí til Ástralíu með verðandi brúðguma sínum og þar komi náttúrlega ekkert annað til greina en gista „á glæsilega ferðamannastaðinn One & Only á Hayman-eyju þar sem nóttin kostar tæpar 1,6 milljónir króna.“
Það er ekkert annað. Ein komma sex milljón króna per nótt fyrir hjónaleysin. Þau hefðu nú betur kíkt á bókunarvef Fararheill því nóg er af lausum herbergjum á One and Only á Hayman-eyju við Ástralíu og nótt þar með morgunverði niður í 50 þúsund kallinn eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti. Það flokkast sem mjög billegt lúxushótel.
Mariah vinkona ætti kannski að fara að skipta út ferðaskipuleggjendum sínum eða Smartland að kanna betur hvað er raunverulega hæft í slíkum „fréttum.“







