Allir þekkja öryggisreglur í þotum samtímans enda flugtak óheimilt án þess að það sé kynnt með einhverjum hætti. Þeir sem tíðast ferðast eru yfirleitt þegar sofnaðir eða geispa um það leyti enda kynningin þreytt og þunn….nema hjá Air New Zealand.
Það ágæta flugfélag sýnir nú diskóútgáfu af öryggisreglunum á skjám í vélum sínum og þótt það í sjálfu sér hafi mögulega engin áhrif á farþega er þó skemmtanagildið aðeins meira en gengur og gerist.







