Tíðindi

Búlgaría vart lengur ódýr áfangastaður

  21/04/2011nóvember 24th, 2014No Comments

Síðustu tíu árin eða svo hefur Búlgaría notið vaxandi vinsælda ferðamanna og þá helst sökum dýrtíðar á hefðbundnum stöðum eins og á Spáni og Ítalíu. Verðlag í Búlgaríu hefur verið töluvert ódýrara og ekki eru nema þrjú ár síðan landið var valið ódýrasti sumaráfangastaðurinn í Evrópu.

Síðan eru liðin mörg ár, eða þrjú allavega, og þótt verðlag per se í landinu hafi ekki hækkað mikið hafa flugferðir þangað hækkað verulega. Þannig kostar nú flug til Búlgaríu frá Skandinavíu eða Bretlandi tvöfalt meira en það kostaði fyrir þremur árum.

Í þokkabót virðist Búlgaríu ekki geta hrist af sér nokkuð slæmt orð gagnvart ferðamönnum en töluvert fleiri erlendir ferðamenn eru rændir á vinsælum áfangastöðum í landinu en gerist og gengur annars staðar. Þekkir ritstjórn til allnokkurra Íslendinga sem orðið hafa fyrir slíku á sumardvalarstöðum við Svartahafið

Mælir ritstjórn Fararheill heldur með Króatíu eða Tyrklandi sé hugmyndin að reyna að lifa ódýrt en leyfa sér samt gott frí.