Tíðindi

TripAdvisor verður fjölmiðill

  21/04/2011nóvember 24th, 2014No Comments

Ferðavefurinn Tripadvisor verður gerður að raunverulegum ferðafjölmiðli og fyrirtækið sett á markað sem slíkt samkvæmt hugmyndum Expedia sem á og rekur Tripadvisor.

Breytir þetta vart miklu fyrir notendur þessa vinsælasta ferðavefs heims nema ef vera skyldi til hins betra.

Mun væntanlega í kjölfarið bera á meiri fjölbreytni í efni vefsins sem hefur alla tíð að meginhluta snúist um að raunverulegir ferðalangar gefa dvalarstöðum sínum einkunnir.

Segir Wall Street Journal frá því að fjárfestar hafi fagnað þessu framtaki enda ljóst að svo vinsæll og stór vefur vekur athygli allra þeirra sem trúa að vefurinn sé framtíðin í allri fjölmiðlun.