Þ að er samdóma álit flestra sem til þekkja að óvíða í Evrópu allri sé miðaldahluti borgar betur varðveittur en í Brugge í Belgíu. Um það er sennilega hægt að deila lengi en óumdeilt er að þessi hluti borgarinnar er stórglæsilegur og klárlega þess virði að eyða hér tíma. Miðbæjartorgin Burg og Markt eru í raun ekkert annað en gríðarstór söfn um evrópskan arkitektúr síðustu alda.
Brugge er höfuðborg vesturhluta Flanders í Belgíu og hróður hennar borist víða sökum gamla borgarhlutans sem er í heild sinni á Heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna sem mikilvægur arfur heimsins.
Hér búa aðeins um 117 þúsund manns sem þýðir að Brugge er jafnfjölmenn og Reykjavík en þar endar reyndar allar samanburður. Tæplega þrjá milljónir ferðamanna sækja borgina heim árlega og það er einfaldlega of mikið af því góða. Á annatímum er sénslaust með öllu að komast á söfn eða á markverða staði sökum fólksfjölda. Hægt er að forðast þetta með heimsókn í apríl eða október.
Til er nýleg kvikmynd sem gerist að öllu leyti í Brugge og er bæði spennandi út af fyrir sig en gefur einnig eðalgóða mynd af ásjónu borgarinnar og er þess virði að berja augum áður en lagt er í hann til Brugge. Sú heitir In Bruges.
Til og frá
Til Brugge er komist frá Brussel á rúmri klukkustund. Mælt er með lest á milli þar sem umferð í Brussel sérstaklega er morð og enginn sem sest undir stýri þar mun njóta eins augnabliks. Vefur belgíska lestarfyrirtækisins SNCB hér.
Rútur koma hingað frá velflestum nágrannabæjum og borgum. Heimasíða rútufyrirtækisins De Lijn hér.
Ekki er raunveruleg þörf á öðru en tveimur jafnfljótum í Brugge. Borgin er í sjálfu sér ekki svo lítil en sá hluti sem forvitnilegur er einskorðast við gamla bæinn og sá er á litlum bletti.
Söfn og sjónarspil
>> Groeninge safnið (Groeningemuseum) – Eitt besta listasafnið í Brugge. Hér má finna verk listamanna síðustu sex aldirnar úr öllum áttum og úr hinum ýmsu menningarstraumum en megináhersla á verk flæmskra og belgískra listamanna. Safnið stendur við Dijver skurðinn í 15 mínútna göngufæri frá miðbænum. Opið daglega 9:30 til 17. Miðaverð 1.300 krónur en sá miði gildir líka inn á Arentshuis. Heimasíðan.
>> Spítalasafnið (Hospitaalmuseum) – Þetta safn er einnig vert skoðunar en byggingin er frá þrettándu öld og var sjúkrahús um aldaraðir. Þar hafa varðveist ýmsir munir frá þeim tíma í viðbót við ýmsa aðra muni frá fyrri tíð sem forvitnilegt er að sjá. Safnið er staðsett gengt Frúarkirkjunni, Onze Lieve Vrouwekerk, og opið 9:30 til 17 daglega nema mánudaga. Aðgangseyrir 1.300 krónur. Heimasíðan.
>> Frúarkirkjan (Onze Lieve Vrouwekerk) – Þessi kirkja er heimsfræg og ekki að ósekju. Falleg bygging og státar af hæsta turni í Evrópu, 122 metrar, sem eingöngu er hlaðinn úr múrsteinum. Innandyra er meðal annars glæsileg hvít marmarastytta af Madonnu og meyjarbarninu eftir Michelangelo. Er þetta eina verk þess mikla listamanns sem nokkru sinni var flutt burt frá Ítalíu meðan hann lifði. Kirkjuna er auðvelt að sjá úr fjarlægð en hún stendur við samnefnda götu. Opið 9:30 til 12 og aftur 13:30 til 17 virka daga og til 16 um helgar. Frítt inn í kirkjuna sjálfa en aðgengi að safni kirkjunnar kostar 450 krónur á mann. Heimasíðan.
>> Klukkuturninn (Belfort en Hallen) – Alþjóðlegt merki Brugge borgar er hinn kostlegi klukkuturn við markaðstorgið, Markt, og hér er múgur og margmenni alla liðlanga daga. Turninn rís 84 metra upp í loft og bjöllur hans pípa reglulega alla daga og heyrist víðast hvar í borginni. Stórfint útsýni er úr turninum en til að komast þangað þarf að príla ein 366 þrep upp og niður og ekki allir hafa þol í það. Ómissandi stopp. Opið daglega 9:30 til 17. Aðgangur í turninn kostar 900 krónur.
>> Silkimiðstöðin (Kantcentrum) – Brugge var um tíma fyrr á öldum miðstöð silkiinnflutnings í Evrópu og Silkimiðstöðin er til minningar um þann gósentíma í sögu borgarinnar. Innan veggja hennar má sjá mismunandi tegundir, handverk úr silki og mismunandi vinnsluaðferðir og sölubásar eru hér líka. Fróðlegt mjög. Staðsett við Jeruzalemstræti. Opið virka daga 10 til 18 en 10 til 17 á laugardögum. Punga þarf út 450 krónur fyrir herlegheitin. Heimasíðan.
>> Ráðhúsið (Stadthuis) – Tignarleg gotnesk bygging frá þrettándu öld og elsta ráðhús í Belgíu allri. Fjölmargt fallegra muna og skreytinga innandyra og allt meira eða minna upprunalegt. Það stendur við Burg 12. Opið alla daga 9:30 til 17. Miðaverð 450 krónur.
Verslun og viðskipti
Brugge er engin sérstök tískuborg og reyndar verður að sækja Brussel heim til að finna verulega gott úrval verslana í Belgíu allri. Helst er að rekast á skemmtilegar verslanir kringum Markt og ´t Zand en margar verslanir prýða götur í allar áttir þaðan.
Silkivörur eru númer eitt, tvö og þrjú. Megnið er þó fjöldaframleitt túristadót en allt handunnið silki er merkt sérstaklega og selt dýru verði. Frægustu silkimynstrin eru bloemenwerk, rozenkant, and toversesteek.
Þá er hér góð bjórmenning eins og annars staðar í landinu og fjöldi fínna bara. Ostar eru líka þess virði að prófa og borgin er fræg fyrir súkkulaðiframleiðslu.
Líf og limir
Óhætt að anda rólega hér. Stöku vasaþjófar á ferð eins og annars staðar og sérstaklega ber að varast slíkt í miklum mannfjölda. Að öðru leyti þarf aðeins að gæta þess að falla ekki í síki borgarinnar ef belgíski bjórinn er teygaður helst til drjúgt.







