Undarlegt mál er nú í gangi í Litháen og Lettlandi en þarlend samkeppnisyfirvöld gerðu í vikunni húsleit hjá flugfélaginu airBaltic eftir kvörtun frá einni ferðaskrifstofu vegna þess að flugfélagið bauð sín bestu verð á vef flugfélagsins.
Það hefur um töluvert skeið verið hinn eðlilegasti hlutur hjá mörgum flugfélögum víða um heim.
En rök ferðaskrifstofunnar eru að með slíkum viðskiptaháttum sé flugfélagið að takmarka samkeppnishæfi ferðaskrifstofa. Þóttu rökin nægileg til að húsleit var gerð en niðurstaða mun ekki liggja fyrir um tíma.
Fararheill.is forvitnaðist um það hjá löglærðum aðila hvort eitthvað þessu líkt gæti gerst hérlendis. Var það talið fjarska ólíklegt með tilliti til að flugfélögin og ferðaskrifstofurnar margar væru í eigu sömu aðila.






