Tíðindi

Óðaverðbólga í fluginu

  28/05/2011desember 4th, 2014No Comments

Við síðustu úttekt Hagstofu Íslands á neysluvísitölu kemur í ljós að þó hækkanir séu yfir línuna á velflestu sem landinn notar kemst ekkert með tærnar þar sem flugsamgöngur hafa hælana. Hækkuðu flugfargjöld á 30 daga tímabili milli apríl og maí um 15,5 prósent.

Það er sannarlega vel í lagt enda þarna er verið að miða við bæði innanlandsflugið en fyrst og fremst dýrari fargjöld Icelandair og Iceland Express.

En staðan versnar töluvert enn því á næsta 30 daga tímabili þarna á undan hækkuðu flugfargjöld einnig um 16 prósent. Þannig hefur kostnaður Íslendinga við að komast til og frá landinu aukist um 31,5 prósent á aðeins tveimur mánuðum.

Þó enginn í ritstjórn Fararheill.is sé hagfræðingur teljum við óhætt að tala um óðaverðbólgu þegar sami hluturinn hækkar um þetta mikið á 60 dögum.

Hjá Alþýðusambandi Íslands furðuðu menn sig á þessum miklu hækkunum flugfargjalda milli mánaða og sögðu engar ástæður sjáanlegar þar að baki. Tekur Fararheill.is undir þau orð ekki síst með tilliti til að þessa dagana er aldeilis að bætast í samkeppnina hjá Icelandair og Iceland Express.

Hægt er að týna til töluverðar hækkanir á olíuverði en þær hafa aðeins verið að ganga til baka og 16 prósenta hækkunin í apríl hefur dekkað þann aukakostnað og vel það.