A llt gott sem endar vel. Við sjáum ekki betur en flugfélagið Play hafi á tæpri viku fært bókunarkerfi sitt til betri vegar og löglegheita.

Alles gut sem endar vel. Mynd Play
Við fjölluðum um súperólöglega verðlagningu Play hér um síðustu mánaðarmót og bendum þá meðal annars Neytendastofu á brotin enda fátt eðlilegt við að auglýsa eitt og heimta allt annað.
Miðað við netta yfirferð okkar nú virðast hlutirnir vera komnir í horf. Uppgefið verð á flugi á forsíðu Play stemmir nú við verðið þegar farið er yfir á bókunarsíðu þeirra.
Áhyggjuefni samt að ef ekki er um að ræða verðmerkingar í gluggum kjólaverslana á Vopnafirði eða skort þar á, virðist Neytendastofu skrambi mikið sama um hlutina.







