Góðu heilli er viti borið fólk þarna úti. Viti borið fólk á borð við borgarstjóra Feneyja sem krefst þess að heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna setji borgina á svartan lista eigi síðar en í gær.

Mekka yfir Hadj? Nei. Bara normal dagur á Markúsartorginu í Feneyjum.
Kannski of lítið of seint en betra er seint en aldrei. Feneyjar orðnar algjört djók með sína innantómu borg, massatúrisma 365 daga ársins og auðvitað risavaxin skemmtiferðaskip sem leggja við Markúsartorgið á fimm mínútna fresti.
Ekki svo að skilja að túristar séu mikið að spá í heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna en á þann lista fara aðeins staðir sem eru stórmerkilegir í mannkynssögulegu tilliti og eru þess virði að varðveita í þágu mannkyns. Talsverð auglýsing fólgin í því jafnvel þó þrír af hverjum fjórum ferðamönnum hafi enga hugmynd um hvað það merkir.
En reglur heimsminjaskrár eru skýrar; ef tiltekinn staður kemst á þá skrá þá verða stjórnvöld viðkomandi ríkis að hlíta töluvert ströngum reglum til að viðhalda þeim heiðri. Stjórnendur heimsminjaskrár þegar varað borgaryfirvöld í Feneyjum við að staða borgarinnar á listanum sé tæp vegna mengunar, skipaumferðar og almennrar óreglu. Og það talsverð tíðindi að borgarstjórinn sjálfur óski eftir því að borgin í heild sinni fari á svarta listann.
Allir sem heimsótt hafa Feneyjar síðustu árin vita hvað borgarstjórinn er að fara. Þetta er deyjandi borg en fjöldatúrismi mun flýta dauðanum töluvert…







