Úff. Eins gott að við hér losuðum okkur við öll hlutabréf í Icelandair fyrir þremur mánuðum síðan. Dagurinn í dag töluvert kostnaðarsamur fyrir íslenska flugfélagið.

Voll í gangi þennan daginn. Mynd Icelandair
Þennan annars ágæta sumardag virðist eitthvað alvarlegt hafa komið upp hjá Icelandair.
Annars vegar aflýsti flugfélagið flugi til Boston í morgun og rella flugfélagsins frá London er bara vel rúmum sex klukkustundum á eftir áætlun þegar þetta er skrifað eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskotum.
Ekkert um tafir eða aflýsingar að finna á vef Icelandair og það þýðir undantekningarlítið að flugfélagið er í tómu tjóni. Hvergi á Google neinar upplýsingar að finna um aflýst flug frá Boston í morgun og hvergi á Google neinar upplýsingar um kúk og kanil frá Heathrow.![]()
Sem er 99% ávísun á að Icelandair er í tjóninu og ef þeir eru í tjóni eigum við
farþegarnir yfirleitt bætur á kantinum.
Umsvifalaust smella skeyti á Samgöngustofu ef þú varðst fyrir aflýsingu frá Boston eða feitum töfum frá London. Boston-vesenið mun líklega færa þér 600 evrur (85 þúsund krónur) og tafirnar frá London eru alveg 400 evra pakki (57 þúsund krónur.)
Hvern munar ekki um það?







