Flestir þeir sem ekki lesa Fararheill.is að staðaldri telja að íslenska flugleitarvélin Dohop sé það allra framúrstefnulegasta síðan hársprey var fundið upp. Vel færi þó á að þeir hinir sömu stöldruðu aðeins við.

Menn seinir til hjá Dohop að setja inn í kerfin nýjasta nýtt.
Við leituðum að flugi til London þann 4. desember og heim aftur þann 13. desember á vef Dohop. Fáum strax upp lægsta verð á flugi þann daginn sem reynist vera með easyJet til og frá Gatwick og prísinn á mann 18.618 krónur báðar leiðir.
Nákvæmlega ekkert að því verði og ástæða til að benda á að þessa sömu daga fæst ekkert lægra með hinu íslenska „lággjaldaflugfélagi“ Wow Air en fyrir 25.997 krónur eða rúmlega sex þúsund krónum dýrara en með easyJet. Svo má náttúrulega borga rúmar 32 þúsund krónur með Icelandair ef þér er sama um peninga fyrir sama flug.
En það er eitt oggulítið vesen sem böggar ritstjórn Fararheill. Sú staðreynd að easyJet er ekki að bjóða lægsta verða á flugi þessa daga þó Dohop haldi öðru fram. Hreint ekki. Lægsta verð fyrir flug fram og aftur umræddar dagsetningar í desember fæst hjá British Airways. Þó ekki sé það lággjaldaflugfélag fæst flug á vef þeirra niður í 16.345 krónur.
Það er sem sagt 2.273 krónum lægra verð hjá British Airways en hjá easyJet þessa daga. Sem er reyndar merkilegur andskoti því easyJet er lággjaldaflugfélag en British Airways ekki.
Skýringin gæti verið sú að það er stutt síðan tilkynnt var að British Airways byði flug til og frá Íslandi næsta vetur. Engu að síður eru nokkrir dagar liðnir og enn finnst ekki stafur um þetta á bókunarvél Dohop!!!
Hvar er ástríðan? Hvar er þjónustustigið? Er viðskiptavinurinn í fyrsta sæti eða ekki?
Hefði verið svo vitlaust að virkja einn eða tvo starfsmenn í yfirvinnu til að koma British Airways inn í kerfið strax svo notendur Dohop njóti raunverulega góðs af því að nota Dohop? Pizzur á yfirvinnufólkið, klapp á bakið og voilà!
Fólk á að geta treyst því að finna lægsta verð á flugi gegnum flugbókunarvélar. Ella er lítil þörf fyrir slíka þjónustu. Að það taki áratugi að henda inn í kerfið nýjustu breytingum segir okkur að menn séu nú helst mikið með lappir upp á stól og að bora í nefið í vinnunni.
* Úttekt gerð kl. 20 þann 11. maí 2015

Lægsta verð sem Dohop finnur milli Keflavíkur og London og til baka…

En Dohop finnur alls ekki lægsta verð á sömu leið sömu daga







