Fréttamiðillinn Stundin greinir frá frægðarför útvalinna í jómfrúarflug Wow Air til Washington D.C. fyrir skemmstu. För sem greidd var að mestu af bandarísku skattfé ef marka má upplýsingar upplýsingafulltrúa fyrirtækisins.

Skúli í góðum gír með undirmönnum sínum en í guðanna bænum ekki móðga karlinn. Mynd Isavia

Skúli í góðum gír með undirmönnum sínum en í guðanna bænum ekki móðga karlinn. Mynd Isavia

Eina ferðavef landsins, Fararheill.is, er ljúft og skylt að skýra frá því að við fengum ekki boð í umrædda ferð. Ástæðan einfaldlega sú að Skúli nokkur Mogensen er viðkvæmari fyrir gagnrýni en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Sannleikanum er jú hver sárreiðastur.

Forvitnilegt samt að sjá þar nöfn blaða- og fréttamanna sem aldrei hafa komið nálægt skrifum eða umfjöllunum um ferðir eða ferðalög. Sennilega auðveldara fólk í taumi en alvöru blaðafólk.

Þessu tengt er ekki úr lagi að nefna líka að Icelandair hefur heldur aldrei boðið ritstjórn Fararheill í neinar ferðir ólíkt öðrum sænsk-íslenskum ferðavef sem hefur nánast aðeins ferðast frítt um heiminn í boði Icelandair.

Hugsandi lesendur mega gera upp við sig hversu jákvætt eða neikvætt það er fyrir stærsta ferðamiðil landsins og best lesna miðil landsins að vera hundsaður sýknt og heilagt. Fyrir okkar leyti teljum við það merki um að við erum að gera eitthvað rétt. Vinna fyrir fólkið en ekki fyrirtækin. Við gefum engan afslátt af því.