O pinbert stafrænt bóluefnavottorð Evrópusambandsins hefur tekið gildi frá og með 1. júlí en slíkt auðveldar til muna öll ferðalög innan ESB auk Sviss, Íslands, Noregs og Liechtenstein. Hvergi finnst stafur um vottorðið á opinberum síðum hérlendis.

Nýtt vottorð léttir róðurinn erlendis. Skjáskot

EU Digital Covid Certificate heitir fyrirbærið en það sýnir fram á, með sérstöku strikamerki í símanum, að viðkomandi hafi A) verið fullbólusettur, B) hafi greinst ósýktur eða C) hafi veikst af Covid en náð fullum bata.

Með slíkt vottorð í farteskinu þarf enginn lengur að óttast vesen á landamærum ESB eða eiga á hættu að þurfa í sóttkví eða einangrun. Bretland er þó enn undantekning því þar er annað kerfi við lýði og vottorðið gildir ekki þar að svo stöddu.

Undarlegt nokk finnst ekki stafur um fyrirbærið hérlendis. Hvorki á vef heilbrigðisráðuneytisins eða Landlæknis og heldur ekki á vefnum Heilsuvera. Ísland hefur þó staðfest þáttöku í verkefninu sem á að standa næstu tólf mánuði hið minnsta.