Það vita þeir sem ferðast að miklu máli getur skipt að flugvellir séu notalegir. Ekki síst á það við þegar biðtími er langur og með því öryggiseftirliti sem viðgengst víðast hvar í dag verða flestir að mæta með þriggja til fjögurra klukkustunda fyrirvara á völlinn. Eftir slíkt er ekki verra að vélar séu á tíma, sætin í flugstöðinni séu þægileg og kaffið ódýrt.

Newark flugvöllur sá allra versti vestanhafs

Newark flugvöllur sá allra versti vestanhafs

Ráðgjafafyrirtækið JD Powers gerir reglulega úttektir á bestu og verstu flugvöllum Bandaríkjanna með tilliti til þjónustu, þæginda og ekki síst seinkanna á ferðum flugvéla. Listinn 2010 er eftirfarandi:

Fimm bestu flugvellirnir

  1. Detroit Michigan
  2. Denver Colorado
  3. Minneapolis Minnesota
  4. Orlando Florida
  5. Phoenix Arizona

Fimm verstu flugvellirnir

  1. Newark New Jersey
  2. Los Angeles Kalifornía
  3. Miami Florída
  4. Philadelphia Pennsylvanía
  5. JFK New York