Tíðindi

Besti veitingastaður heims í Köben

  18/04/2011desember 19th, 2013No Comments

Þá er það opinbert. Besti veitingastaður heims 2011 er hinn danski Noma í Kaupmannahöfn….aftur. Ekki lítið afrek hjá dönsku kokkunum þremur sem staðinn reka en áður en Noma fékk þessi sömu verðlaun í fyrra hafði ekki einn einasti danskur veitingastaður komist á blað í San Pellegrino samkeppninni sem þykir sú merkasta af allnokkrum slíkum keppnum.

Inngangurinn að besta veitingastað heims lætur lítið yfir sér

Voru verðlaun þessi kynnt í dag með þeim pompi og prakt sem aðeins Bandaríkjamenn geta sett á svið. Danirnir klárlega sigurvegarar enda fáheyrt að sami veitingastaður vinni þessi verðlaun tvisvar í röð.

Spánverjar komu einnig sterkt inn að þessu sinni með þrjá veitingastaði á topp tíu, Bandaríkjamenn tvo, Bretland einn, Frakkland einn og Ítalía einn.

Klárlega staðir til að taka sína heittelskuðu eða elskaða þó flestir staðirnir séu þungir á pyngjuna.

Þetta eru tíu bestu veitingastaðir heims 2011

  1. Noma – Kaupmannahöfn, Danmörk
  2. El Celler de Can Roca – Girona, Spáni
  3. Mugaritz – Errenteria, Spáni
  4. Osteria Francescana – Modena, Ítalíu
  5. Fat Duck – Berkshire, Englandi
  6. Alinea – Chicago, Bandaríkjunum
  7. D.O.M. – Sao Paulo, Brasilíu
  8. Arzak – San Sebastian, Spáni
  9. Le Chateubriand – París, Frakklandi
  10. Per Se – New York, Bandaríkjunum

Listi dómnefndar San Pellegrino í heild sinni hér.