Það er ekkert nýmæli að öryggisráðstafanir í Bandaríkjunum fari út fyrir velflest velsæmismörk en líkamsleit á sex ára stúlku með bangsa er of mikið af því góða.
Þetta átti sér stað fyrir skömmu á flugvelli þar í landi og hefur gengið fram af mörgum. Í það minnsta öllum þeim er misstu af sams konar líkamsleit á sex ára dreng í janúar síðastliðnum.
Hefur kvörtunum rignt yfir Flugöryggisstofnun Bandaríkjanna, TSA, eftir að myndband þetta birtist á fréttastöð Fox sjónvarpsstöðvarinnar og þykir mönnum þetta einfaldlega of mikið af því góða.
Hvað finnst þér?