Hún fékk snubbóttan endi Ítalíuferð eins ferðalangs frá Georgíu. Síðustu daga ljúfrar ferðarinnar eyddi sá bak við lás og slá og hundruð þúsund krónum fátækari eftir að hafa reynt að stela fágætum flísum úr rústum Pompei.

Reglulega reyna menn að stela fágætum minjum víða um veröld og tekst það oftar en ekki. Mynd scruff monkey

Reglulega reyna menn að stela fágætum minjum víða um veröld og tekst það oftar en ekki. Mynd scruff monkey

Mjög hefur færst í vöxt víða að misyndismenn í hópi ferðalanga reyna að stela munum úr fágætum minjum og kannski skiljanlega. Margir slíkir munir seljast á einfaldan hátt, fljótt og örugglega og oft fyrir háar fjárhæðir gegnum netið. Ekki er svo langt síðan stórt stykki úr Berlínarmúrnum var selt á eBay fyrir 800 þúsund krónur svo dæmi sé tekið.

Þetta er hörmuleg þróun og við henni hafa ítölsk yfirvöld spornað þessa síðustu og verstu. Almennt hefur gæsla á merkisstöðum í landinu verið lítil sem engin en það hefur breyst mjög hin síðari ár. Lögreglumenn eru meira að segja á ferli orðið í rústum Pompei auk öryggisgæslumanna.

Georgíumaðurinn var samt heppinn þó hann næðist. Fátið var svo mikið þegar upp komst um stuldinn að hann henti frá sér tveimur flísum af þremur sem auðvitað brotnuðu. Að mati Fararheill ætti slíkt að kalla á mun harðari refsingu en fáeina daga bak við lás og slá. Þetta eru jú ómetanlegir munir.