Starfsfólk Leifsstöðvar virðist ekki vita að það er með öllu ólöglegt fyrir ferðamenn frá ýmsum löndum heims að taka með sér hvalkjöt heim á leið frá Íslandi.
Fákunnátta þess er orðið að stóru fréttamáli beggja vegna Atlantsála eftir að dýraverndunarsamtök gerðu viðvart um að starfsfólk þeirrar verslunar í brottfararsal Leifsstöðvar sem selur hvalkjöt í innsigluðum umbúðum veit ekki betur en allir geta keypt hvalkjötið og tekið það með sér heim á leið.
Svo er þó ekki og geta ferðamenn frá Bretlandi og Bandaríkjunum og mun víðar að lent í vandræðum og jafnvel verið sektaðir ef hvalkjöt finnst í farangri þeirra.
Sama gildir eðlilega um Íslendinga sem vilja færa Frónbúum eða vinum erlendis bita af stórgóðu hvalkjötinu. Slíkt er ólöglegt víða og hart tekið á fólki sem kemur með slíkt jafnvel þó aðeins sé um einn einasta bita að ræða.






