Tíðindi

Bannað að hafa þrjár töskur

  27/10/2011desember 5th, 2014No Comments

Ferðagarpurinn Páll Ásgeir Ásgeirsson, sem þekktari er fyrir að ganga sér til húðar á hálendi Íslands en í stórborgum erlendis, segir farir sínar ekki sléttar gagnvart ferðasalanum Iceland Express.

Í bloggpistli amast Páll Ásgeir yfir því að mega ekki taka með sér þrjár töskur svo lengi sem þær eru undir þeim kílóafjölda sem ferðasalinn setur farþegum sínum án þess að greiða aukagjald.

Þegar ég kom svo að borðinu þar sem farþegar Inferno Express tékka sig inn kom í ljós að 20 kílóin sem hver farþegi má hafa með sér mega ekki vera í þremur töskum nema sérstakt gjald komi fyrir þá þriðju.

Um þessi ákvæði er vandlega þagað á skiltum öllum og heimasíðu félagsins sem eykur líkur á að grunlausir farþegar verði múltéraðir á staðnum.

Inferno gæti lært margt á þessu sviði af Easyjet en það ágæta fyrirtæki flutti okkur í dag og gekk vel enda allar upplýsingar uppi á borðinu um það hvað mætti og hvað mætti ekki.

Ritstjórn Fararheill.is getur staðfest að ekki eru nákvæmar upplýsingar um hvað má og hvað ekki við innritunarborð Iceland Express í Leifsstöð eða á innritunarstöðvum félagsins erlendis. Hins vegar kemur skýrt fram á vef ferðasalans að aðeins megi innrita EINA tösku með hámark 20 kíló án aukagjalds. Nánar um það hér.

Ólíkt Iceland Express mega farþegar easyJet, sem ásamt JetBlue er af mörgum talið besta lágfargjaldaflugfélag heims, taka með sér eins margar töskur og þeir vilja svo lengi sem heildarþyngd er undir leyfilegum mörkum.

Svo er nú kannski allt í lagi að velta fyrir sér hvers vegna Páll Ásgeir vill taka þrjár hálftómar töskur með sér í stutta borgarferð til Berlínar?