Alltaf tilhlökkunarefni að fá alvöru þjónustu á klakann. Eins og til að mynda þá þjónustu flugfélaga að sýna áhugasömum á augabragði lægsta mögulega fargjald til hinna ýmsu áfangastaða.
Fararheill gagnrýndi það lengi vel að hvorki Icelandair og Wow Air gáfu hugsanlegum viðskiptavinum sínum færi á að sjá í hvelli lægsta fargjald til áfangastaða flugfélaganna. En nei, það var allt of mikil þjónusta fyrir íslenskan lýð lengi vel þó Wow Air hafi loks kveikt á peru seint á síðasta ári. Nú má sjá þar á sekúndum fargjöld Wow Air til allra áfangastaða. Hjá Icelandair, þessu sama fyrirtæki og greiðir milljarða í arð árlega, er þó allt við sama heygarðshornið. Þú skal bara taka helgina frá til að leita að auglýstu lægsta fargjaldi þess flugfélags. Jafnvel símtal á skrifstofu Icelandair skilar engum upplýsingum um hvenær hægt er að finna auglýst lægstu fargjöld.
Þetta er ekki vandamál hjá bresku flugfélögunum easyJet né British Airways. Þar skiptir tími viðskiptavinar máli hvort sem sá vill finna lægsta verð á viðskiptafarrými eða ódýrasta farrými. Þess vegna tók okkur sirka þrjár sekúndur að finna þetta:
Þetta skiptir máli ekki aðeins vegna tímasparnaðarins heldur og hve mikill verðmunur getur verið á flug þessi dægrin. Fjögurra manna fjölskylda sparar 140 þúsund krónur á að fljúga til Dúbai í júní í stað júlí á næsta ári. Sömuleiðis sparar fjölskyldan 80 þúsund krónur að halda til Sidney Ástralíu í sama mánuði í stað júlí. Það eru fjármunir sem flesta munar um.
Lággjaldaflugfélagið easyJet er með sömu þjónusta á vef sínum og Wow Air býður fólki þetta líka góðu heilli. Um að gera að brúka þessi hjálpartæki.










