Góðir tímar fyrir þá sem vilja til London án þess að borga fúlgur fyrir skitna samloku hjá Icelandair, 600 kall fyrir vatnsglas hjá Wow Air eða þúsundir króna aukalega fyrir sæti sem ekki veldur krampa hjá easyJet.

Jómfrúarflug British Airways frá Keflavík hefst um helgina. Mynd Pieter van Marion

Jómfrúarflug British Airways frá Keflavík hefst um helgina. Mynd Pieter van Marion

British Airways lendir hér í jómfrúarflugi sínu á sunnudaginn kemur og eðli málsins samkvæmt heldur fyrsta vélin utan til London skömmu síðar. Það þýðir matur, bjór, vín, gos eða vatn alveg gjörsamlega án þess að það kosti þig eyri aukalega í flugi með félaginu. Það þýðir eina handtösku plús fartölvutösku eða veski. Þó er enginn innritaður farangur innifalinn kaupi fólk allra lægsta fargjaldið.

Góðir tímar í hönd fyrir þá sem vilja ódýrt í víking. Hverjum hefði dottið í hug árið 2010 þegar rekstur Iceland Express var í járnum og Icelandair kvartaði og kveinaði og heimtaði ríkisaðstoð til að auglýsa sig, að fimm árum síðar kepptu FJÖGUR flugfélögum um hylli fólks á flugleiðinni Keflavík – London og öfugt. Frábært. The more the merrier eins og Bretinn myndi segja.

Það er líka nokkuð auðvelt að sjá hversu vel sala sæta hingað og út gengur hjá British Airways. Lágu fargjöldin sem flugfélagið auglýsti hér í vor eru að mestu farin og næstu misserin ekki svo auðvelt að fá sæti á góðu verði. En sé leitað lengra aftur í tímann er hægt að fljúga aðra leið út niður undir sex þúsund krónur. Það er lággjaldaprís hjá alvöru flugfélagi.