Ekki fyrr er Fararheill búið að níða skóinn af Icelandair fyrir að voga sér að auglýsa flug vestur um haf niður í 14.900 krónur án þess að nokkuð slíkt sé í boði fyrr en Wow Air stekkur fram á sjónarsvið með flug aðra leiðina vestur um haf niður í 14.900.

Nú er óhætt að brosa og það feitt og mikið. Mynd Wow Air

Nú er óhætt að brosa og það feitt og mikið. Mynd Wow Air

Engum blöðum er um að fletta að þetta er besta tilboð sem Wow Air hefur nokkurn tímann boðið landanum jafnvel þó raunverð á fluginu sé 15.998 krónur en ekki 14.900 eins og auglýst er. Tilboð flugfélagsins nær til stöku ferða til Boston og Washington D.C. í vetur. Við könnuðum málið og það er töluvert af sætum í boði á ýmsum dagsetningum.

Auðvitað reynir flugfélagið aðeins að plata. Engin heimferð er í boði niður í 14.900 eftir því sem leit Fararheill leiddi í ljós. Hins vegar er nokkuð af sætum heim aftur niður í 17.999 eða 18.998 krónur með bókunargjaldi og það er ekkert hræðilegt heldur. Samtals kostar því heim- og útferð á allra lægsta fargjaldi 33.997 krónur alls á mann. Það er fantagott verð í hvaða gjaldmiðli sem er.

Mínusinn sem endranær sá að fáir Íslendingar heimsækja Boston til annars en eyða peningum í verslunum og koma klyfjaðir heim. Þurfi fólk eina 20 kílóa tösku með báðar leiðir bætast tíu þúsund krónur ofan á pakkann. Engu að síður fer 45 þúsund kallinn seint á spjöld sögunnar sem kostnaðarsamt ferðalag til Bandaríkjanna.

Gott mál og hér að neðan getur þú slegið tvær flugur í einu höggi og tryggt þér toppgistingu á lægsta mögulega verði hér að neðan á hótelbókunarvél Fararheill sem er tvöfaldur heimsmeistari í þeirri grein 😉