Sumarútsala lággjaldaflugfélagsins Norwegian er hafin og eins og við var að búast þar hægt að gera sérdeilis fín kaup um allar trissur. Ekki dapurt að fljúga aðra leið til Antalya í Tyrklandi eða Alicante á Spáni vel undir tíu þúsund krónum.

Ódýrt út með Norwegian
Það bara tvö dæmi af mörgum tilboðum sem finna má á vef norska flugfélagsins þessa stundina og næstu sólarhringana. Auðvitað þurfum við að hunskast til Noregs til að komast í þessi fínu tilboð en það má líka finna fargjöld á fínu verði héðan til Osló og þar um þrjú flugfélög að ræða. Ef ferðast er létt ætti fólk að geta fundið flug þangað og heim aftur niður í 25 þúsund krónur eða svo og þannig nýtt sér tilboðin.







