Það verður seint af Bretum skafið að þeir eru dramadrottningar fram í fingurgóma. Breska utanríkisráðuneytið varar sterklega við hugsanlegum hryðjuverkum gegn ferðamönnum í mörgum helstu nágrannalöndum sínum og skammast sín ekkert fyrir.

Hryðjuverkaógn ríkir nánast um alla Evrópu samkvæmt Bretum. Mynd Breska utanríkisráðuneytið
Það ríkir sem sagt mikil ógn um hryðjuverk á Spáni og í Tyrklandi og Frakklandi samkvæmt nýjasta lista ráðuneytisins sem settur er saman í samvinnu við leyniþjónustuna MI5.
Ekki nóg með að þessi þrjú vinsælustu ferðamannalönd álfunnar fái á baukinn heldur er líka talin „almenn“ hætta á hryðjuverkum gegn ferðamönnum í Þýskalandi, Grikklandi og á Ítalíu.
Líklega eru Bretarnir extra varir um sig þessa dagana eftir að 30 breskir þegnar voru myrtir á sólarströnd í Túnis fyrir skömmu en fyrr má nú rota en dauðrota.
Í fyrsta lagi gera slíkar yfirlýsingar ekkert gagn nema hræða fólk. Rannsóknir bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum hafa sýnt að viðvaranir stjórnvalda vegna „hugsanlegra hryðjuverka“ eru nánast 100 prósent marklausar. Með öðrum orðum eru næstum aldrei framin hryðjuverk í þeim borgum og á þeim stöðum sem leyniþjónustur vara við slíku fyrirfram. Í öðru lagi gagnast það engum að vara við hættu í Frakklandi öllu eða á öllum Spáni. Jafnvel þó einhver í þeim löndum vilji hafa varann á sér þá er viðvörunin svo almenn að það er ómögulegt að gera ráðstafanir. Síðast en ekki síst þá er vita vonlaust að stöðva brjálaðan mann sem æðir með vélbyssu eða handsprengjur eða vopn önnur inn á næstu sólarströnd og lætur vaða. Eins og atvikið í Túnis sýndi vel fram á. Þar voru vopnaðir verðir og lögregla um allt en það breytti engu.
En sem sagt: þú hefur fengið aðvörun.







