
Hvers vegna fær manneskja sem er bæði skattsvikari og hvers fyrirtæki hefur ítrekað verið dæmt fyrir óheilindi, svindl og svínarí gagnvart Íslendingum pláss í blaður í Viðskiptablaðinu? Mynd Ísavía.
Hauksson hefur verið forstjóri Símans um langa hríð og var þar áður aðstoðarmaður Davíðs Oddsonar, forsætisráðherra og stríðsglæpamanns.
Hauksson er í fyrsta lagi skattsvikari, í öðru lagi almenningsníðill og í þriðja lagi gaur sem skattborgarar greiða fúlgur fjár fyrir að stjórna stóru ríkisfyrirtæki. Í þessu tilfelli Ísavía.
Lesa má frekar um „afrek” þessa skíthæls hér en það vekur athygli okkar hér að gaurinn fær að blaðra tóma steypu í aðsendri grein í Viðskiptablaðinu. Grein þar sem uppistaðan er frábær samstaða Íslendinga gagnvart Covid en jafnframt ákall um að lífeyrissjóðir landsmanna eyði meiru fé í erlendar fjárfestingar.
Sem sagt; maður sem hefur ítrekað svindlað á landanum samkvæmt gögnum Samkeppnisstofnunar og geymir gjarnan fjármuni sína í erlendum skattaskjólum til að þurfa nú ekki að greiða neitt í sameiginlega sjóði landsmanna fær óhikað að blaðra um að sameiginlegir fjármunir landsmanna séu nú best geymdir á x og x stöðum.
Viðskiptablaðið þarf að girða sig í brók. Svona sleðar eiga ekkert erindi í umræðu hérlendis.







