
Hæðin fræga! Þetta „djásn“ er brandari út í eitt ekkert síður en innfluttu dönsku stráin við bragga í Nauthólsvík…
Skitnir Bretar ekki einungis eina þjóð heims sem ráðist hefur á Íslandið góða í þorskastríðunum heldur og fer lítið fyrir heilasellunum hjá helstu stjórnendum landsins. Trúðurinn Boris Johnson þar fremstur í flokki en borgaryfirvöld í London ekki saklaus heldur.
Í einu hornu hins fræga Hyde Park, og í næsta nágrenni við geysivinsælar verslunargötur á borð við Oxford strætið, má nú finna nýjasta „djásn” Lundúna. Formlegt heiti þessa fyrirbæris er Marble Arch Mound sem er æði safaríkt nafn fyrir heimagerða 25 metra háa „náttúrulega” hæð við hlið hins eiginlega bogadregna gamla borgarhliðs Marble Arch sem margir þekkja.
Hæðin atarna er brandari út í eitt og kostaði ekki nema tæpan hálfan milljarð króna að byggja. Víst er hugmyndin sú að fólk geti fengið smá útsýni yfir miðborg Lundúna af toppi Marble Arch Mound en hvað er varið í útsýni yfir gelda steypu í allar áttir? Alls engar rannsóknir benda til að það sé holl og góð skemmtun fyrir lifandi verur.

Þess utan er hæðin atarna fjarri því að vera eins og lagt var upp með. Hér átti að vera gróður út um allt, tré frá fjarlægum löndum og litrík blóm til að létta aðeins steypufarganið sem einkennir miðborg Lundúna. Klifur á toppinn kostar litlar þrjú þúsund krónur á kjaft.
Hundrað prósent drasl ef þú spyrð okkur. Ekki nokkur einasta ástæða til að labba eitt skref upp Marble Arch Mound og hvað þá að borga feita seðla fyrir.







