Ekki bara Jesú sem gerir kraftaverk. Það gerir samkeppni líka. Skoðun á jólagjafabréfum Icelandair þessa vertíðina leiðir í ljós að skilmálum og takmörkunum á notkun slíkra bréfa hefur fækkað um helming frá árinu 2012.

Skilmálar jólagjafabréfa Icelandair 2017. Allt annað og betra en verið hefur. Skjáskot
Árið 2012 voru skilmálar jólagjafabréfa Icelandair þykkari en símaskráin eins og lesa má um hér. Þá mátti telja samkeppnisaðila flugfélagsins á fingrum handalauss manns. Wow Air reyndar komið til sögunnar en var ekki farið að ógna neitt risaeðlunum hjá Icelandair. Icelandair hafði því frítt spil og þurfti stærðfræðiprófessor til að reikna út hvenær nákvæmlega eigandi jólagjafabréfs mátti eða gat flogið fyrir bréfið.
Nú loks hafa menn hætt að slefa í koddann sinn hjá Icelandair og einhver með vit í kolli áttað sig á að jólagjafabréf verður að höfða til margra og það án þess að mæta þurfi á námskeið í Háskóla Íslands til að skilja allt smáa letrið.
Skilmála þessa árs má sjá hér til hliðar en ólíkt fyrri „tilboðum“ eru engar hömlur á áfangastöðum og engar hömlur heldur á ferðatíma að því gefnu að nota verður bréfið á næstu tveimur árum. Það töluvert liðlegra en árið 2012 þegar ferðatími var takmarkaður við fáeina mánuði og flug þurfti að bóka strax á nýju ári.
Gott að markaðsfólk hjá Icelandair hefur séð ljósið. Hafið bara samband ef þið viljið að góðir hlutir gerist hratt en ekki hægt 😉







