Yfirleitt má ekki Íslendingur prumpa erlendis án þess að yfirborðskenndir íslenskir fjölmiðlar fjalli um málið frá A til Ö. Þess vegna vekur sérstaka athygli að engir minnast orði á að flugleitarvefurinn Dohop var fyrir skömmu valinn besti flugleitarvefur heims og það í þriðja skipti.

Því miður er Dohop ekki íslenskur lengur en stendur sig prýðilega í samkeppninni samt.

Það er sérdeilis fínn árangur í bransa þar sem samkeppnin er morð á morð ofan og nýir vefir og tækninýjungar koma til sögunnar á hverjum degi. Dohop fékk gullverðlaun World Travel Awards, oft kölluð óskarsverðlaun ferðabransans, í þriðja skiptið fyrr í vikunni.

Við hér ekki alltaf verið sátt við Dohop en þó oftast vegna þess að við finnum gjarnan ódýrari fargjöld gegnum aðra flugleitarvefi. Upp á síðkastið líka vegna þess að Dohop er nú í eigu bandaríska skattaskjólsfyrirtækisins Priceline, sama aðila og rekur Booking. Fyrirtækið því tæknilega ekki lengur íslenskt eins og var.

Það breytir ekki því að tækninýjungar Dohop eru merkilegar og þar ekki síst möguleikar á tengiflugi áhyggjulaust eða verðtrygging á flugi ef áhugasamir eru ekki alveg vissir.

Og verðlaunin eru impressíf svo við slettum aðeins. Enginn flugleitarvefur hefur neglt fleiri gullverðlaun.