Þau eru mörg trixin sem fyrirtæki beita til að hafa sem mest fé af fólki. Eitt sérstaklega súrt dæmi finnst nú hjá ferðaskrifstofunni Heimsferðum.

Allt að 100% verðmunur á flugsætum innan sömu samsteypu.

Allt að 100% verðmunur á flugsætum innan sömu samsteypu.

Fyrir utan pakkaferðir sínar auglýsir ferðaskrifstofan líka flugsæti til sölu til Barcelóna og Alicante. Sem er hið allra besta mál nema ef vera skyldi að það er allt að því 100% álagning á þeim flugsætum miðað við uppgefið verð á bókunarsíðu flugfélagsins Primera Air.

Hvers vegna er það eitthvað merkilegt langar þig að vita. Mega fyrirtæki ekki ráða sinni verðlagningu?

Auðvitað mega þau það og gera. En hér verður að horfa til þess að Primera Air og Heimsferðir eru í raun eitt og sama fyrirtækið. Heimsferðir er dótturfélag Primera Group sem á og rekur flugfélagið auk annars. Flugsætin sem Heimsferðir selur eru um borð í vélum Primera Air.

Þess vegna skýtur mjög í augu að flugsæti með Primera Air til Alicante þann 10. júlí kostar 14.995 krónur en sama sæti í sama flugi hjá Heimsferðum kostar manninn 29.990 krónur!

Undantekningarlítið kostar flugfarið til Alicante gegnum Primera Air fimm til fimmtán þúsund krónum minna en hjá dótturfélaginu Heimsferðum í júní og júlí þegar þetta er skrifað.

Til Barcelóna eru svipað upp á teningnum í júlímánuði. Þar líka kostar flugfar með Heimsferðum aðra leið 29.900 krónur en á vef Primera Air fæst ferðin út niður í 17.995 krónur lægst. Það er tæplega 70% verðmunur á sömu vöru.

Hvers vegna svona ægilegur verðmunur er á sömu vöru hjá sömu samsteypu er óljóst en væri ekki dálítið vinalegt af hálfu Heimsferða þó ekki væri nema benda fólki á að ívið betri kjör fáist með því að bóka beint með flugfélaginu? Væri það ekki dálítið góð þjónusta við viðskiptavininn?